Rafræn þjónustahúð- og kynsjúkdómalæknis

Hér getur þú sent inn upplýsingar fyrir bókaðan tíma eða óskað eftir ráðgjöf húð- og kynsjúkdómalæknis.

Bókaður tími

Áttu bókaðan tíma? Ef já, vinsamlegast sendu inn upplýsingar og myndir að minnsta kosti tveimur dögum fyrir ráðgerðan tíma.

Rafræn ráðgjöf

Vantar þig þjónustu húð- og kynsjúkdómalæknis. Hér getur þú óskað eftir ráðgjöf. Svar berst í Heilsuveru.

Betri undirbúningur – markvissari ráðgjöf – einfaldari samskipti

Þjónustan

  1. Þú svarar spurningum

    Forritið leiðir þig áfram í gegnum spurningar og biður um viðeigandi myndir.

  2. Sérfræðilæknir metur

    Húð- og kynsjúkdómalæknir fer yfir erindið og gefur greiningu, meðferð og metur hvort þörf sé á frekari skoðun.

  3. Svar berst í Heilsuveru

    Svör og fræðsla berast í Heilsuveru, lyfseðlar í lyfjagátt og tímabókun send ef erindið krefst nánari skoðunar.

Nánar um þjónustuna